Sony Xperia XZ Dual SIM - Tækið ræst í fyrsta sinn

background image

Tækið ræst í fyrsta sinn

Mælt er með því að þú hlaðir rafhlöðuna í minnst 30 mínútur áður en þú ræsir tækið í

fyrsta sinn. Þú getur notað tækið á meðan á hleðslu stendur, sjá

Tækið hlaðið

á bls. 35.

Þegar tækið er ræst í fyrsta sinn hjálpar uppsetningarleiðsögn þér að grunnstilla tækið,

stilla það eftir þínu höfði og skrá þig inn á reikninga, t.d. Google™-reikninginn þinn.

Kveikt á tækinu

Mikilvægt er að nota USB Type-C™ snúruna (sem fylgir með) þegar tækið er hlaðið þar sem

annars konar USB-snúrur geta skemmt tækið. Mælt er með að rafhlaðan hafi hlaðist í minnst

30 mínútur áður en kveikt er á tækinu í fyrsta skipti.

1

Haltu aflrofanum inni þar til tækið titrar.

2

Sláðu inn PIN-númerið fyrir SIM-kort 1 og SIM-kort 2 þegar beðið er um það og

pikkaðu síðan á

.

3

Bíddu augnablik þar til tækið ræsist.

Símafyrirtækið lætur þér upphaflega í té PIN-númer SIM-kortsins en þú getur breytt því seinna

í stillingarvalmyndinni. Til að leiðrétta villu þegar þú slærð inn PIN-númer SIM-kortsins

pikkarðu á

.

Slökkt á tækinu

1

Haltu rofanum inni þar til valkostavalmyndin opnast.

2

Í valkostavalmyndinni pikkarðu á

Slökkva.

Nokkur tími getur liðið þar til slokknar alveg á tækinu.